Hérna getið þið hlustað á brot úr 3 lögum með Flugdrekafélaginu, tekið upp á æfingum í apríl ´11.
3 log af æfingum by HelgiRafn
Friday, April 22, 2011
Tuesday, April 12, 2011
Frumraun flugdrekafélagsins

Við ákváðum að fresta frumraun Flugdrekafélagsins. Ástæðan var einfaldlega sú að við höfðum ekki náð að æfa nóg og vildum að allt væri öruggt áður en haldið yrði út í hinn harða heim. Til upprifjunar, þá ætluðum við upprunalega að hafa tónleika 8 apríl, en núna er dagsetningin 29.apríl. Einnig eru tónleikar ráðgerðir 5.maí.
Aðgangur verður ókeypis þann 29.apríl og staðsetning tilkynnt síðar. Næsta æfing verður fimmtudaginn 14.apríl kl.20 og þá ætla ég að taka upp smá live demó og setja hingað. Bandið er orðið 8 manna og bara eftir að fínpússa lögin.
kv.
Helgi Rafn
Monday, March 28, 2011
Seinasti séns
Það er seinasti séns til að sjá Alla leið heim á laugardaginn næsta, 2.apríl. Miðasala í s.865-6731 eða midar@nfsu.is.
"Sýningin var hröð, atriðaskipti örugg og stundum var atriði varla byrjað þegar það var búið og maður varð að grípa andann á lofti til að hlæja áður en næsta atriði var komið á fullan skrið." - Silja, Tímarit Máls og ...Menningar. 20.mars.
"Ríkisstjórinn var bestur, en svolítill senuþjófur." "Þið notuðuð rýmið vel, flóðið var æðislegt! Maður fann alveg tilfinninguna að vera að undir vatni!" "Stóri gaurinn söng flottan bassa." (Aðstandendur Bjargar Einarsdóttur)
"Mér fannst allur söngurinn svo æðislegur." "KKK senan var uppáhald, og lokalagið :D" (Aðstandendur Ármanns Ingunnarsonar)

Sunday, March 20, 2011
Frábær umfjöllun fyrir ´Alla leið heim´
Við Árni og Leikfélag FSU fáum asskoti góða umfjöllun í Tímariti Máls og menningar fyrir leikritið ´Alla leið heim´.
Hér er útdráttur:
Sviðið er raunar geysistórt miðrými og leiksvið í rúmgóðum samkomusal, og veitir ekki af, en hugkvæmni leikstjórans Árna Kristjánssonar á sér heldur ekki mikil takmörk. Sýningin var hröð, atriðaskipti örugg og stundum var atriði varla byrjað þegar það var búið og maður varð að grípa andann á lofti til að hlæja áður en næsta atriði var komið á fullan skrið. Ég er þá til dæmis að hugsa um beljuna (Sara Sif Kristinsdóttir) sem var skotin!
Sérstaka athygli vekur tónlistin í sýningunni sem Helgi Rafn Ingvarsson stýrir. Það sem vantaði upp á í framsögn bættu ungmennin upp í söng. Auk titillagsins verður söngur sírenanna, Írenu Víglundsdóttur, Kristrúnar Steingrímsdóttur og Þórdísar Imsland, sérstaklega minnisstæður. Það hefði verið auðvelt að láta þær leiða sig hvert sem vera skyldi.
Leikgerðina upp úr bíómyndinni vann leikstjórinn með Snorra bróður sínum en það var leikráð FSU sem fékk hugmyndina. Hún hefði nú getað dregið kjarkinn úr minni körlum en þeim Árna, Snorra og Helga Rafni en árangurinn er svo góður að mikið má vera ef leikgerðin verður ekki notuð víðar á næstu árum.
Greinin í heild sinni er svo hér:
http://tmm.forlagid.is/?p=2313#more-2313
Miðasala í síma 865-6731

Saturday, March 19, 2011
Frumsýning í gær - Alla leið heim

Leikfélag FSU var með frumsýningu í gærkvöldi á verkinu sínu ´Alla leið heim´, fluttningurinn gekk vel og góð stemming myndaðist jafnt meðal áhorfenda og flytjenda. Við Árni vorum mjög ánægðir með útkomuna og allir sem komu að sýningunni í miklu spennufalli eftir á. Troðfullur salur og mikil gleði.
Það er búið að vera mjög gefandi að vinna með þessum krökkum.
Stefnt er á nokkrar sýningar. Ef þið hafið gaman af gleði leikhúsi, kíkið þá á þessa sýningu. Meiri upplýsinar á meðfylgjandi plakati.
Subscribe to:
Posts (Atom)